Anna Guðrún Torfadóttir

Mynd
Anna Guðrún Torfadóttir

Halló! Ég heiti Anna og er teiknari og grafískur hönnuður sem starfar sem markaðsfulltrúi. Verk mín snúa aðallega að karakterhönnun, hugmyndahönnun og myndrænni frásögn.

Í fyrra útskrifaðist ég úr grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands. Útskriftarverkefnið mitt var myndasagan Brotlending. Sagan fjallar um tvo englabossa í kúrekastígvélum sem brotlenda geimskipi sínu á óþekktri plánetu, þar sem þeir þurfa að vinna saman til að finna leiðina heim.

Óhefðbundið brot bókarinnar (harmonikkbrot) hafði mikil áhrif á þróun sögunnar. Síðan þá hef ég aðlagað hana að hefðbundnara bókaformi og gefið hana formlega út.