Mynd

Ég heiti Björn Heimir Önundarson og er fæddur 1996. Ég útskrifaðist af Teiknibraut Myndlistarskólans í Reykjavík 2018. Eftir það flutti ég til Rotterdam og stundaði þar Animation nám við Willem de Kooning Academy í eitt ár. Ég hef verið að gera og gefa út teiknimyndasögur síðan 2017 og stofnaði jaðarmyndasögublaðið Mergæxli sem var samansafn af sögum frá mismunandi listamönnum. Tvö tölublöð komu út á árunum 2017-2018 og voru sjálfútgefin í takmörkuðu upplagi. Árið 2018 gaf ég út myndasöguna "Larfur Lauks" og ári síðar myndasögubókina "Áskell Jónsson tekst á við Tæpa Frænda". Nú vinn ég að tæplega 70 blaðsíðna myndasögu sem kemur vonandi út í sumar.