Jean Antoine Posocco

Mynd
Jean Antoine Posocco

Jean er franskur myndskreytir og teiknimyndasöguhöfundur sem, eftir að hafa myndskreytt fjölda barnabóka og búið til nokkrar teiknimyndasögur, sérhæfði sig í útgáfu teiknimyndasagna.  Hann tók þátt í útgáfu hasarblaðsins Blek í tuttugu ár og gegndi virku hlutverki í að kynna myndasögugerð á Íslandi. Meðal annars með því að setja á stofn fyrstu myndasögunámskeið á Íslandi. Í dag rekur hann útgáfufyrirtækið Froskur útgáfa, sem gefur út flestar myndasögur á Íslandi.