Jolaljos_comics

Mynd
Jolaljos_comics

Ég er með brennandi áhuga á myndasögum og ég bæði sem og teikna þær. Ég fann upp á Jólaljósamanninum, hversdaglega ofurhetju Vesturbæjar, í 8. bekk og ég hef verið að þróa og búa til sögur um hann síðan þá. Auk þess hef ég mikinn áhuga á fornsögum og hef útfært tvo kafla af Grettissögu sem myndasögu í von um að gera Íslendingasögurnar aðgengilegri fyrir nýja lesendur. Einnig hef ég gert nokkrar örstuttar sögur eins og t.d. Ruslheimar, Tröllanótt og fleira.

Markmið mitt er að breyta heiminum með myndasögum með því að veita fólki innblástur, fræða það og kenna því góð gildi. Einnig vil ég upphefja Íslenskar myndasögur og styrkja þetta listform sem hefur svo oft verið vanmetið í gegnum tíðina.

Þegar ég er ekki að teikna stunda ég sagnfræðilegar skylmingar (HEMA), tefli og grúska í fornsögum og heimspeki. Nýlega útskrifaðist ég úr Teiknibraut Myndlistaskóla Reykjavíkur og hef verið að læra á Google Calendar og digital minimalism síðan þá.