Mynd
Ég er teiknari og hef mikinn áhuga á myndasögugerð, ég hef gert nokkrar mér til gaman. Ég ætla að vinna í einni myndasögu í sumar sem mig langar að prenta út til að hafa á þessari myndasöguhátið. Ég hef líka verið að búa til límmiða og ég seldi þá á Copenhagen Comics 2025 og í versluninni Nakano. í vor er ég líklega að fara í nám hjá myndlistaskóla Reykjavíkur á teiknibrautina.