ÍSLENSKA MYNDASÖGUSAMFÉLAGIÐ

Image
ÍSLENSKA MYNDASÖGUSAMFÉLAGIÐ

2026
Maí — Ræstum Kríkukeppnina, Íslandsmót í myndasögugerð í samstarfi við Barnamenningarsjóð
Jan — Tókum þátt í japönsku menningarhátíðinni með kynngarbás í samstarfi við
japanska sendiráðið og Háskóla Íslands.

2025
Des — Skipulögðum og tókum þátt í Myndasögugöngunum í Nexus Glæsibæ.
Nóv — Stýrðum „Myndasöguhristing,“ viðburði þar sem handritshöfundar og teiknarar
gátu hist, kynnst og myndað ný samstarfstengsl.
Okt — Leiddum Zine-myndasögunámskeið á Barnamenningarhátíð Vestfjarða í
Búðardal.
Ágú — Tókum þátt í annarri myndasögumyndlistahátíð Siglufjarðar með bás og
myndlistasýningunni Fjarlægðin gerir fjöllin blá.
Jan — Tókum þátt í japönsku menningarhátíðinni með kynngarbás í samstarfi við
japanska sendiráðið og Háskóla Íslands.

2024
Ágú — Tókum þátt í fyrstu myndasögumyndlistahátíð Siglufjarðar
Jan — Tókum þátt í alþjóðlegu myndasögulistahátíðinni í Angoullême, Frakklandi
Rákum vinnustofu í manga-myndasögugerð á japönsku menningarhátíðinni í
samstarfi við japanska sendiráðið og Háskóla Íslands.

2023
Sept — Tókum þátt í popp-listahátíðinni Midgard í Laugardalshöll
Maí — hélt myndlistasýninguna Íslenskar myndasögur í samstarfi við þjóðarbókhlöðuna

2022
Nóvember — Myndasögur og máttur þeirra, íslensk þýðing á bókinni Understanding
Comics eftir Scott McCloud gefin út.
Júlí — Strange Love myndlistasýning í Gallerí Fold. Sýningin var hluti af Reykjavík Fringe
jaðarlistahátíðinni. Eitt af verkum sýningarinnar, Apples Baked and Words Unspoken eftir
Sólveigu Evu Magnúsdóttur, vann til Pen to Paper-verðlaunanna.

2021
Júlí — Strange Encounters myndlistasýning í Gallerí Fold. Sýningin var hluti af Reykjavík
Fringe jaðarlistahátíðinni.
Gullni hringurinn eftir Brimrúnu Birtu Friðþjófsdóttur og Viktor Inga
Guðmundsson kynntur í samstarfi við Reykjavík Fringe og Tjarnarbíó.

2020
Desember — myndasögusagnabálkurinn ÍMS 2020 gefinn út. Bókin safnar saman
myndasögum sem framleiddar voru á fyrsta starfsári ÍMS, þ.á.m. Strange Communities og
Elves at the Airport.
Júlí — Strange Communities myndlistasýning í Gallerí Fold. Sýningin var hluti af Reykjavík
Fringe jaðarlistahátíðinni og vann til Pen to Paper-verðlauna á hátíðinni.
Febrúar — Anime-klúbbnum komið á fót í samstarfi við borgarbókasafnið í Gerðubergi.
Þetta æskulýðsstarf hefur breiðst út um höfuðborgarsvæðið, þ.á.m. í Grófina, til
Garðabæjar og Hafnarfjarðar.

2019
Desember — Íslenska myndasögusamfélagið formlega stofnað.
Nóvember — fyrsta formlega „myndasögusulta“ haldin, reglulegir hittingar þar sem
myndasöguhöfundar og aðrir myndlistamenn geta hist, spjallað, kynnt verk sín o.s.frv.
Sulturnar halda áfram á næstu árum með misjöfnu millibili þökk sé Covid.
Október — Elves at the Airport myndlistasýning haldin í Listasafni Reykjavíkur.
Myndasögunámskeið haldið fyrir börn og unglinga.
September — Elves at the Airport myndasögusamstarf milli íslenskra og finnskra
myndasöguhöfunda í Helsinki, Finnlandi.