Mynd

Ég er nemandi í Myndlistarskóla Reykjavíkur og er hálfnaður með námið þar. Mitt helsta markmið sem listamaður er að styrkja íslenskar myndasögur og auka vinsældir þeirra. Ég sé mikla fegurð í hversdagsleikanum og vil gera Reykjavík að sögusviði fyrir myndasögurnar mínar um Jólaljósamanninn. Ég hef líka áhuga á að útfæra íslendingasögur á borð við Grettissögu og Eiríkssögu sem myndasögur til þess að gera þær aðgengilegri, eins og Ingólfur Örn Björgvinsson og Embla Ýr Bárudóttir gerðu með Njálu. Auk myndasagna hef ég líka gaman af myndskreytingu og skopteikningum.